Langoliers
Ég fór til Reykjavíkur á fimmtudaginn eftir skóla með henni Helgu Rós og mömmu hennar, og það gekk bara nokkuð vel. En svo komum við í Reykjavík og þar eru ekkert allir jafn duglegir við að rata og aðrir :) en þeim tókst að koma mér á aðfangastað - Takk kærlega ! Ég gisti heima hjá Ella bróðir og hann var svo elskulegur að leyfa Gunnari að koma og gista líka :) það var vaknað soldið snemma á föstudaginn enda átti ég að vera mætt í atvinnuviðtal klukkan níu, ekki fyrr og ekki seinna :) held bara að það hafai gengið vel, hef samt ekkert til að miða við, enda fyrsta alvöru atvinnu viðtalið mitt ! Einhvern tíma er allt fyrst ! Fæ svo svar eftir viku eða tvær vikur, og er ekkert smá spennt ! Eftir viðtalið hitti ég Búbbuna mína :) hafði ekki hitt hana síðan í maí á síðasta ári :S VÁ hvað það var gott að hitta hana, tala við hana og vera í kringum hana :) kíktum rúnt og svo í Kringluna. Þar keypti hún sér e-ð og líka jólagjöf handa mér, þennan flotta og bleika brjóstahaldara :) takk elskan mín ! Ég reyndar keypti mér bara einn hlut í Reykjavík og það var nýtt pennaveski, já mitt sem hefur fylgt mér síðan í 8. bekk er farið að syngja sitt síðasta :( en það kemur að lokum hjá öllu ! Loks settumst við á Café Bleu og vorum ekkert smá kvenlegar ;) NOT ! Náði að afreka það að lesa í Raddir Barnabókanna í Reykjavík og eftir það horfði ég Langoliers e. Stephen King. Þriggja tíma mynd og ágætlega góð. Ég og Gunnar fórum svo Norður eftir að ég fékk að skoða tilvonandi samstað minn eftir stúdentinn :) og Bjarni fékk far með okkur. Kom svo við á Dósinni hjá systu & co og fékk knús og kossa :) og líka mynd af strákunum. Restinni af kvöldinu var eytt í að horfa á DVD og svo hitta mömmu Gunnars :S vá ég var feimin en þetta er bara fínasta kona :) !
Á laugardaginn var legið í leti, lesið meira í Raddir Barnabókanna og svo fariða á Akureyri í bíó, ég, Gunnar og Oddur. Fórum á Big mamas house 2 og svo var tekið flipp, drykkja í þokunni og svo loksins komist aftur á Krókinn, þar tók barinn við og billjard leikur við hana Höllu mína :)
Í dag var okkur boðið í mat til Jökuls og Jónu, og Davíð og Eydís komu líka :) Hryggur og voða flott - Takk æðislega ! Annars var dagurinn tekinn rólega. Kúrðum yfir mynd og skoðuðum á netinu flug til Danmerkurs og hvað sé hægt að gera þar :) já hljómar ekki vel að fara til DK, tjalda og versla eins og vitleysingur ?
En ég átti að vera að læra fyrir íslensku próf núna, en var að lesa á Fróða að prófið færist á miðvikudaginn :) ég er ekkert smá fegin !

7 Comments:
At 1:18 AM,
Halla said…
hehe minns vann þig í pool, tvisvar!!! hehe :)
en já mér líst sko vel á danmörk! það verður stuð :)
At 4:10 PM,
snappy_sheep said…
Já veit þú vannst :S en samt gaman að spila við þig :) verðum að fara að æfa okkur meira :)
Já ég held að DK sé málið og gisting í tjöldum ;)
At 4:38 PM,
Eydís said…
mér líst vel á etta sko.. en ekki að gista í tjaldi :s
At 4:38 PM,
Nafnlaus said…
mér líst vel á etta sko.. en ekki að gista í tjaldi :s
At 6:15 PM,
Halla said…
já það er alltaf gaman að spila við þig! en já við verðum víst að vera duglegri að æfa okkur :)
mér er alveg sama hvort ég er í tjaldi eða ekki..!!
At 8:12 PM,
snappy_sheep said…
Ég held sko að það yrði stemma að vera í tjaldi, maður er hvort sem er aldrei inn á þessum herbergjum sem maður yrði annars að borga hellings pening fyrir :S
@ Halla: Er það Gilmore Girls á morgun :) ?
At 3:47 PM,
Halla said…
ójá gilmore girls í kvöld :)
Sendu inn athugasemd
<< Home