Þú verður að vakna til að draumar þínir rætist

þriðjudagur, mars 21, 2006

Pink... me...?

Já ég ákvað að breyta síðunni, enn einu sinni, eins og þið sjáið kannski :) og það skrítna er að beikt varð fyrir valinu :S já er farin að halda að ég sé bleik í afneitun ;) þeir fatta sem fatta ! En þá vil ég líka fara að heyra ákveðna manneskju segjast vera hnakki í afneitun ;) einnig fattar sá sem fattar ! En nú ætla ég að stíga stórt skref og segja að bleikt er kannski ekker svo slæmur litur.... VÁ ÞETTA VAR ERFITT ! En blár og svartur er samt enn í uppáhaldi hjá mér :)

Í dag er svo kominn mánuður hjá mér og Gunna :) ekki slæmt það. Tíminn er ekkert smá fljótur að líða. Í rauninni hverfur tíminn bara alveg frá manni og áður en maður veit af er maður orðinn tvítugur, með hrukkur og grá hár :S jeij sem betur fer verð ég ekki tvítug fyrr en í haust ;) Samt er Gunnar orðinn tvítugur en engin grá hár eða hrukkur :S hmmm.... kannski er þá í lagi að verða eldri? Það er pæling...

,,Ég lifi lífinu þegar ég er dauð" - sagði þetta við Odd í dag. Ég var e-ð að ræða háskóla og hann sagðist vilja lifa lífinu e-ð fyrst, en ég sagði að ég myndi lifa því þegar ég væri búin í skóla :) ,,En ef þú deyrð þegar þú ert ný búin með skólann"?.... Já góð pæling og mín gat svarað ;) mjög svo thinkable setning !

Já er sem sagt farin að hugsa um meira nám, enda klára ég stúdentinn í maí :) en ég er með tvennt sem ég er að hugsa um, en það er annað hvort félagsráðgjöf í félagsvísindadeildinni eða enska í hugvísindadeildinni.... veit ekki akkuru ég er að pæla í þessu, enda bæði mjög erfitt... En e-ð langar mig að læra meira, en hef ENGA hugmynd um hvað... Eruð þið, sem eruð að klára, e-ð farin að hugsa um meira nám ? ? ?

Hmmm svo er Elli bróðir að fara út á föstudaginn, já á leik með Liverpool - Everton. Mig langar líka :S ! Kannski einhvern tíma í framtíðinni *lítið ský fyrir ofan hausinn* Kannski maður fái e-ð að utan ;) *blink blink*

Jæja kleinurnar mína, ég er þá rokin, er svöng og þreytt, sakna fullt af fólki og hef allt of mikið að gera :S Salut !

20 Comments:

  • At 11:18 PM, Anonymous Eydís said…

    úff mig langar í cocapuffs....

     
  • At 11:22 PM, Blogger snappy_sheep said…

    Já mig líka :S eða svið :)

     
  • At 11:34 PM, Anonymous Halla said…

    mig langar í meira cheerios :s

     
  • At 8:28 AM, Anonymous Arna said…

    Þú færð engin grá hár eða hrukkur þó þú verið 20!! Ég er búin að vera það í meira en mánuð og ekkert sést á mér! Svo þú ættir ekki að þurfa að hafa áhyggjur af þessu!

    Ég er samt dáldið svekkt yfir að hafa ekki hitt þig á föstudaginn síðasta! :/ Og guð einn veit hvenær sá möguleiki gefst aftur!

    Kv. Arna M.

     
  • At 9:24 AM, Blogger snappy_sheep said…

    @ Arna: Ég stoppaði svo stutt og átti enga inneign til að hafa samband. Þú hefðir náttla geta hringt í mig ;)

     
  • At 1:43 PM, Anonymous Arna said…

    Jaa.. ég hélt að þú værir upptekin með kallinum þínum og mömmu hans. Þú sagðist ætla að vesenast eitthvað með þeim svo ég vildi ekki hringja og trufla.

     
  • At 1:58 PM, Blogger snappy_sheep said…

    @ Arna: Nei ég sagði það aldrei... Sagði að hann væri að vinna og svo færum við norður, og að ég ætlaði að reyna að hitta mömmu hans.

     
  • At 2:01 PM, Anonymous Nafnlaus said…

    NEI eg er ekki hnakki i afneitun!! ;)

     
  • At 2:02 PM, Anonymous Gunnar D said…

    ja það e alveg rétt hja þér Harpa min ...þú ert bleik ....:) ég skil alveg að einhver vilji ekki segjast vera hankki ...cuz af því að þú kemst ekki neðar en það :P hehe ;)

     
  • At 9:35 PM, Anonymous Gummi Ari said…

    Elskan mín, bleikur er æðislegur litur :D Til hamingju með að vera loksins komin út með þetta :) Bleikur brjóstahaldari og bleik síða, lýst vel á þetta. Og með tímanum verður þetta auðveldara, bráðum er helmingur eigna þinna bleikt :)

     
  • At 9:36 PM, Anonymous Arna said…

    Nú jæja.. mig minnti hitt..

     
  • At 10:23 PM, Anonymous systa said…

    þetta er allt niður á við eftir tvítugt. Var að leggja inn pöntun fyrir göngugrind því stafurinn er ekki að virka fyrir mig lengur !!!!
    Kveðja gamla konan í sveitinni

     
  • At 10:24 PM, Anonymous Halla said…

    hehe Harpa með allt bleikt, ég mundi vilja sjá það gerast :D
    annars er síðan fín hjá þér svona bleik! :)

     
  • At 10:24 PM, Anonymous Halla said…

    hehe Harpa með allt bleikt, ég mundi vilja sjá það gerast :D
    annars er síðan fín hjá þér svona bleik! :)

     
  • At 10:25 PM, Anonymous Halla said…

    úpps ég þjáist af óþolinmæði þannig að þetta kom óvart tvisvar :s

     
  • At 10:18 AM, Blogger snappy_sheep said…

    Sko people, taka því rólega ;) ég er nýbyrjuð að samþykkja bleikt, ef að það gerist e-ð á næstunni að ég muni eiga e-ð mikið af bleiku :S einn dag í einu. En bleikt er svo sem í lagi, ekkert verri litur en annar :)

    @ Hrefna: systa mín, þú ert nú ekki orðin svo gömul ;) hehe !

     
  • At 10:40 AM, Anonymous Halla said…

    jájá bleikur er fínn litur, bara ekki neitt fyrir mig! það yrði nú samt fyndið á sjá þig með allt bleikt.. hehehe :D

     
  • At 10:29 AM, Anonymous Eydís said…

    Gunni minn.. hvernig komst þú þá vona langt? :S ;)

     
  • At 4:41 PM, Anonymous Raggi B. said…

    Ohh ég ekki orðinn 20 ára kominn með grá hár og hrukkur, alveg fer þetta með mann ég vil það ekki *grenj*

    Hehe og svo sniðugt að sýna lit svona af og til ;)

     
  • At 11:14 AM, Anonymous Lilja Dögg said…

    Hey harpa hvernær kemur suður... ég sakna þin svoo mikið... en það var svekkjandi að geta ekki hitt þig þegar þú varst í bænum.... en hey þetta bleika er fínt- varð að minnast á það fyrst allir aðrir gerðu það... en er alltaf á leiðini að hringja eða senda mail... hehe þú veist hvernig þetta er ... en hey ertu búin að fá svar um starfið

     

Sendu inn athugasemd

<< Home